Fréttir

Jólin 2014

Jólin 2014

   
Lesa meira
Blaðamannastyrkir Norðurlandaráðs - umsóknarfrestur til 12. janúar
Tilkynning

Blaðamannastyrkir Norðurlandaráðs - umsóknarfrestur til 12. janúar

Blaðamannastyrkir Norðurlandaráðs árið 2015 eru nú lausir til umsóknar. Umsóknarfrestur rennur út á hádegi 12. janúar nk. Markmiðið með árlegum blaðamannastyrkjum Norðurlandaráðs er að auka áhuga blaðamanna og veita þeim tækifæri til að fjalla um aðstæður annars staðar á Norðurlöndum og greina frá norrænu samstarfi. Í sjóðnum eru samtals 450.000 danskar krónur til úthlutunar, þ.e.a.s 90.000 danskar krónur í hverju landi (u.þ.b. 1.874.000 ISK).  Sjá nánar hér    
Lesa meira
EFJ fagnar skýrslu Evrópuráðs um Ungverjaland

EFJ fagnar skýrslu Evrópuráðs um Ungverjaland

Evrópusamband blaðamanna hefur fagnat útkomu skýrslu mannréttindastjóra Evrópuráðsins, Nils Muižnieks, um ástandið í fjölmiðlamálum í Ungverjalandi. Í skýrslunni eru fjölmiðlalögin í landinu gagnrýnd harðlega og kallað er eftir breytingum á þeim.  Judit Acsay, sem er varaformaður Blaðamannafélags í Ungverjalandi (MÚOSZ)  sem er aðili að EFJ, segir skýrsluna  draga up rétta mynd af stöðunni og vonar að tilkoma henna auki þrýsting á stjórnvöld um að gera breytingar á löggjöfinni.   Sjá skýrsluna hér Sjá myndskeið og frétt hér  
Lesa meira
Siðaviðmið fjölmiðla
Tilkynning

Siðaviðmið fjölmiðla

 Siðaviðmið íslenskra fjölmiðla er yfirskrift námskeið sem boðið verður upp á hjá Endurmenntunarstofnun Háskóal Íslands. Það er Friðirk Þór Friðriksson, sem kennir námskeiðið sem  hefst þann 2. febrúar á næsta ári. Á þessu námskeiði er siða- og innanhússreglum íslenskra fjölmiðla lýst og fjallað um úrskurði Siðanefndar Blaðamannafélags Íslands í leit að mikilvægum fordæmum. Hvaða viðmið gilda um nafn- og myndbirtingar, tillitsemi, vandvirkni, hagsmunaárekstra, óhefðbundin vinnubrögð og fleira? Hafa siðareglur BÍ þýðingu fyrir blaða- og fréttamenn og eru þær óumdeildar? Er mark tekið á úrskurðum siðanefndarinnar? Sjá  einnig hér
Lesa meira
Nám fyrir starfandi blaðamenn í Berlín

Nám fyrir starfandi blaðamenn í Berlín

Frjálsi háskólinn í Berlín hefur nú auglýst eftir umsóknum um námsdvöl í Berlín fyrir reynda blaðamenn í Evrópu eða í Bandaríkjum. Um er að ræða styrk til dvalar við Frjálsa háskólann eða Freie Universität. Blaðamenn geta fengið tækifæri til tveggja anna dvalar við Freie Universitaet á meðan þeir eru í leyfi frá stöðum sínum í heimalandinu. Prógrammið hefst í október 2015og stendur fram í júlí 2016. Einu skilyrðin sem uppfylla þarf er að viðkomandi sé starfandi blaðamaður og að hann hyggist vinna að fræðilegu verkefni á sviði blaðamennsku. Fjárhagslegi styrkurinn nemur um 1.500 evrum á mánuði en getur þó verið meiri eða minni eftir því hvers konar styrk er um að ræða. Umsóknarfrestur er til 28. febrúar næstkomandi. Sjá frekari upplýsingar hér  
Lesa meira
Hér má sjá samanburð á afstöðu frambjóðenda í Alþingiskosningunum 2013 og sveitarstjórnarkosningunum…

Lítil tiltrú stjórnmálamanna á fagmennsku blaðamanna

Á samfélagsmiðlum hefur undanfarna daga verið nokkur umræða um fjandsamlega afstöðu stjórnmálamanna til fjölmiðla og uppástungur komið fram um að tekið verði saman hverjir og með hvaða hætti íslenskir stjórnmálamenn hafi hótað eða gagnrýnt fjölmiðla og einstaka fjölmiðamenn. Oftast má rekja viðbrögð stjórnmálamana til þess að þeir telji  viðkomandi fjölmiðla eða fjölmiðlamenn ekki segja frá af hlutlægni. Raunar er það athyglisvert einkenni á íslensku fjölmiðlaumhverfi hve litla tiltrú stjórnmálamenn hafa á faglegum vinnubrögðum fréttamanna á landsdekkandi miðlum. Óháð því hvort eða að hve miklu leyti menn vilja taka mark á þessum skoðunum stjórnmálamanna á fjölmiðlum, þá er þetta vantraust á fagmennsku mikilvægt einkenni á fjölmiðlaumhverfinu og kemur til viðbótar því  litla trausti sem mælist hjá almenningi á fjölmiðlum t.d. í könnunum MMR.  Í nýlegri grein Birgis Guðmundson um stjórnmál og fjölmiðla sem birtist á Þjóðarspegli, Félagsvísindastofnunar H.Í.  kemur fram að tiltrú sveitarstjórnarmanna á fjölmiðlum virðist talsvert meiri en tiltrú stjórnmálamanna sem voru í framboði í síðustu Alþingiskosningum, þótt tiltrúin hjá hvorugum hópnum sé mikil.  Í þessari grein má sjá mælingar og samanburð á skoðunum stjórnmálamanna (frambjóðenda) í sveitarstjórnarkosningunum sl. vor og Alþingiskosningunum 2013 til fjölmiðla, hversu hlutlausir/hlutdrægir þeir eru og hvort frambjóðendur telji þá hallast til hægri eða vinstri. Sjá grein hér  
Lesa meira
Blaðamaðurinn á pdf

Blaðamaðurinn á pdf

Blaðamaðurinn, rit B.Í.  sem kom út fyrir nokkrum dögum á nú að vera kominn heim til félagsmanna. Blaðið er einnig birt á pdf formi hér á netinu  og má nálgast það hér og svo auðvitað með því að fara inn á hlekkinn "Blaðamaðurinn" hér að neðan.  Rétt er að benda á að þar sem fjallað er um söguna og eldri félaga úr BÍ er vísað í blaðamannaminni hér á síðunni, og með því að afrita tenglana sem birtast í pdf útgáfunni geta menn farið beint inn á síðu með upplýsingum um viðkomandi blaðamann.
Lesa meira
Féllust á dómsátt

Féllust á dómsátt

 Dóms­sátt hef­ur tek­ist milli tveggja blaðamanna og rit­stjóra DV annars vegar og fyrrum aðstoðarmanns Hönnu Birnu Kristjánsdóttir, Þóreyj­ar Vil­hjálms­dótt­ur vegna meiðyrðastefnu Þóreyjar á hendur blaðinu.  Samið var um kr. 330.000 krón­ur í sátta­skyni sem Þórey mun láta renna til Stíga­móta.  Í yfirlýsingu frá Þóreyju kmeur fram að hún vísar á bug að stefnan hafi verið eitthvað frábrugðin hefðbundnum stefnum af þessu tagi og að rangt sé að hún hafi sérstaklega haft hug á að fá blaðamennina dæmda í fangelsi.  Þá ekmur fram í yfirlýsingu frá blðamönnunum, þeim Jó­hani Páll Jó­hanns­syni og Jóni Bjarka Magnús­syni, að þeir hefðu kosið að fara dómstólaleiðina en eigendur blaðsins hafi viljað sátt sem þeir hafi fallist á.   Hér má sjá yfirlýsingu Jóns Bjarka og Jóhanns Páls  
Lesa meira
Frá undirritun samkomulagsins í París

Samkomulag um viðbragðsáætlun til að tryggja öryggi og frelsi blaðamanna

Evrópusamband blaðamanna, Alþjóðasamband blaðamanna og þrjú samtök sem láta sig tjáningarfrelsi fjölmiðla varða  ásamt fulltrúum Evrópuráðsins skrifuðu í síðustu viku undir samkomulag um vettvang eða viðbragðsáætlun til að tryggja sem best öryggi blaðamanna við störf sín.  Samkomulagið var undirritað við hátíðlega athöfn að  á ráðstefnu í París sem Þing Evrópuráðsins og efri deild franska þingsins höfðu skipulagt.   Þessi vettvangur  eða viðbragðsáætlun byggir á sameiginlegu alþjóðlegu vefsetri þar sem viðurkennd samtök og stofnanir á sviði fjölmiðlafrelsis geta sett fram „viðvaranir“  um að tjáningarfrelsi tiltekinna fjölmiðla eða fjölmiðlafólks í einhverju landi sé á einhvern hátt í hættu.  Með því er hugmyndin að alþjóðlegir aðilar s.s.  Evrópuráðið, fjölmiðlafulltrúar ÖSE, Evrópusambandið eða Sameinuðu þjóðirnar geti brugðist hratt við og beitt sér í málum.  Í viðvörunum kæmu fram staðreyndir – sem búið væri að sannreyna af þeim samtökum sem viðurkennd hafa verið – um hugsanlega vá sem blasti við t.d. blaðamönnum, bloggurum og rithöfundum eða hættu sem steðjaði að heimildarmönnum þeirra. Eins gæti fallið undir þetta gróf brot á persónuvernd og þrýstingur á blaðamenn í gegnum misnotkun á  löggjöf  t.d. um meiðyrði, minnihlutahópa, þjóðaröryggi eða öfgahyggju. Sjá minnisblað Evrópuráðsins um málið hér Sjá einnig frétt  hérna
Lesa meira
Námskeið fyrir blaðamenn í Oxford

Námskeið fyrir blaðamenn í Oxford

Auglýst hefur verið að starfandi blaðamönnum standi til boða  námskeið frá Reuters Institute til dvalar í Oxford á Englandi. Þessu námskeiði geta fylgt einhverjir styrkir, en það er einnig hugsað  til þess að blaðamenn á miðjum starfsferli geti tekið sér leyfi frá störfum í 3- 9 mánuði. Ætlast er til að umsækjendur hafi minnst fimm ára reynslu af störfum í einhvers konar blaðamennsku og séu góðir í að tala og skrifa á ensku.  Þátttakendum er gefið tækifæri til að skoða með gagnrýnum hætti blaðamennskufagið og rannsaka eitthvert það viðfangsefni sem þeir kjósa undir leiðsögn  fræðimanns sem er sérfræðingur á því sviði. Samhliða gefst tækifæri til að anda að sér menningarstraumum og lifsgildum sem einkenna hinn fornfræga Oxfordháskóla.   Umsóknarfrestur er til loka janúar 2015. Sjá nánar hér  
Lesa meira