- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Auglýst hefur verið að starfandi blaðamönnum standi til boða námskeið frá Reuters Institute til dvalar í Oxford á Englandi. Þessu námskeiði geta fylgt einhverjir styrkir, en það er einnig hugsað til þess að blaðamenn á miðjum starfsferli geti tekið sér leyfi frá störfum í 3- 9 mánuði. Ætlast er til að umsækjendur hafi minnst fimm ára reynslu af störfum í einhvers konar blaðamennsku og séu góðir í að tala og skrifa á ensku. Þátttakendum er gefið tækifæri til að skoða með gagnrýnum hætti blaðamennskufagið og rannsaka eitthvert það viðfangsefni sem þeir kjósa undir leiðsögn fræðimanns sem er sérfræðingur á því sviði. Samhliða gefst tækifæri til að anda að sér menningarstraumum og lifsgildum sem einkenna hinn fornfræga Oxfordháskóla. Umsóknarfrestur er til loka janúar 2015.