Reglugerð Endurmenntunar- og háskólasjóðs

Reglugerð
Endurmenntunar- og háskólasjóðs Blaðamannafélags Íslands


1. gr. Nafn sjóðsins og heimili

1.1 Sjóðurinn heitir Endurmenntunar- og háskólasjóður Blaðamannafélags Íslands

1.2 Sjóðurinn er eign Blaðamannafélags Íslands (hér eftir BÍ).

1.3 Heimili hans og varnarþing er í Reykjavík.

 

2.gr. Verkefni sjóðsins

2.1 Að styrkja sjóðfélaga til að stunda nám eða sækja einstök námskeið.

2.2 Að styrkja sjóðfélaga til að sækja ráðstefnur og kynna sér nýjungar jafnt innanlands sem utan.

 

3. gr. Aðild

3.1 Rétt til aðildar að sjóðnum eiga allir félagar í BÍ sem greitt hafa til sjóðsins í næstliðna sex mánuði og fyrnist réttur til styrkja sex mánuðum eftir að greiðslum í sjóðinn er hætt.
3.2 Stjórn sjóðsins setur nánari reglur um greiðslur úr sjóðnum.
3.3 Reglur um greiðslur úr sjóðnum skulu endurskoðaðar reglulega með hliðsjón af fjárhagsstöðu sjóðsins.

4. gr. Stjórn og rekstur

4.1 Fulltrúar BÍ í stjórn sjóðsins skulu vera fjórir, þar af einn varamaður og skulu kosnir árlega á aðalfundi BÍ. Stjórn sjóðsins skiptir með sér verkum.

4.2. Stjórn sjóðsins fer með framkvæmdavald í málefnum hans milli aðalfunda, ber ábyrgð á rekstri, fjárhag og eigum sjóðsins.

4.3. Sjóðurinn hefur sjálfstæðan fjárhag og skal honum haldið aðgreindum frá fjárhag BÍ og fjárhag annarra sjóða í eigu eða á vegum BÍ.

4.4. Sjóðurinn greiðir allan kostnað sem af rekstri hans leiðir.

4.5. Daglegur rekstur sjóðsins skal vera á skrifstofu BÍ.

5. gr. Tekjur og ávöxtun eigna

5.1. Tekjur sjóðsins eru:

5.1.1 Samningsbundnar greiðslur atvinnurekenda eins og þær eru ákveðnar í kjarasamningi blaðamanna á hverjum tíma.

5.1.2 Vaxtatekjur og aðrar fjármagnstekjur.

5.2 Eignir sjóðsins skulu varðveittar í traustum verðbréfum og bankainnstæðum. Sjóðnum er óheimilt að kaupa fasteignir og taka eða veita lán.

5.3 Stjórn sjóðsins er heimilt að fela utanaðkomandi aðila ávöxtun hans.

6. gr. Ársreikningur og endurskoðun

6.1 Reikningsár sjóðsins er almanaksárið. Ársreikningur sjóðsins skal endurskoðaður af skoðunarmönnum BÍ og löggiltum endurskoðanda eða endurskoðunarstofu. Hann skal lagður fram samhliða reikningum BÍ og jafnframt sendur samninganefnd atvinnurekenda.

7. gr. Slit sjóðsins

7.1. Nú er BÍ lagt niður án þess að annað sameiginlegt félag blaðamanna komi í þess stað og skal sjóðnum þá slitið. Eignir sjóðsins skulu þá renna til fullgildra félagsmanna í réttu hlutfalli við fjölda þeirra.

7.2 Einstaklingar sem segja sig úr BÍ eiga ekki tilkall til eigna sjóðsins.

8. gr. Breytingar á reglugerð

8.1. Breytingar á reglugerð þessari öðlast ekki gildi nema þær hafi verið samþykktar á aðalfundi BÍ. Um atkvæðagreiðslu um breytingar á reglugerðinni á aðalfundi BÍ gilda sömu reglur og um lagabreytingar.

9. gr. Nánari starfsreglur

9.1 Sjóðstjórn setur nánari starfsreglur skv. reglugerð þessari.

10. gr. Gildistaka

10.1. Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á framhaldsaðalfundi BÍ 4. september 2024