- Félagið & fagið
- BÍ
- Faglegt
- Siðavefur
- Lög og reglugerðir tengdar blaðamennsku
- Blaðamaðurinn
- Ritstjórnarlegt sjálfstæði
- Aðgengi að hættusvæðum
- Viðburðir
- Verðlaun & viðurkenningar
- Atvinnutorg
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Í dag, 22. mars, voru afhent verðlaun í Ljósmyndasafni Reykjavíkur fyrir myndir ársins 2024. Veitt voru verðlaun fyrir fréttamynd ársins og mynd ársins. Eggert Jóhannesson hlaut verðlaun fyrir fréttamynd ársins og Kjartan Þorbjörnsson (Golli) fyrir mynd ársins.
Dómnefndarstörf fóru fram snemma í febrúar en í ár skipuðu óháðu dómnefndina: Árni Torfason, Hrund Þórsdóttir, Una Sighvatsdóttir og Patrick Brown, tvöfaldur World Press Photo vinningshafi sem var formaður dómnefndar.
Á ljósmyndasýningunni Myndir ársins 2024 er 101 mynd frá 14 blaðaljósmyndurum sem valdar voru úr mörg hundruð innsendum myndum.
Blaðaljósmyndarafélag Íslands var stofnað árið 1976 og starfar innan Blaðamannafélags Íslands. Sýningin Myndir ársins hefur verið haldin síðan 1979 og er ein fjölsóttasta ljósmyndasýningin landsins ár hvert. Stjórn Blaðaljósmyndarafélags Íslands í ár skipa Kjartan Þorbjörnsson, Golli, (formaður), Anton Brink, Eyþór Árnason og Ragnhildur Aðalsteinsdóttir. Samhliða sýningunni kemur út bók með öllum myndum sýningarinnar sem er til sölu í safnbúð Ljósmyndasafns Reykjavíkur.
Sýningin verður opin í Ljósmyndasafni Reykjavíkur til 27. apríl 2025.
Mynd ársins 2024: Kjartan Þorbjörnsson (Golli)
Umsögn dómnefndar: „Dómnefnd var einróma í vali á mynd ársins. Myndin grípur strax og er áhugaverð fyrir margra hluta sakir. Myndin er hluti af myndröð um flóttafólk frá Palestínu og mótmæli vegna framgöngu yfirvalda í málefnum þeirra. Hún kjarnar á vissan hátt eitt stærsta mál samtímans, stöðu flóttafólks í veröldinni. Börn og fjölskyldur sem búa við stöðuga ógn leita skjóls, sem oft er erfitt að finna. Barnið á myndinni er á stað sem heita má öruggur, en leitar þó athvarfs og á vissan hátt er táknrænt að barnið virðist vaxið upp úr skjóli sínu.
Táknmynd sjálfstæðis, Jón Sigurðsson, vakir yfir og flugvélin gefur tengingu við umheiminn en minnir jafnframt á þá áframhaldandi ógn sem flóttafólk býr við, að geta átt von á því að vera sent úr landi. Myndin hefði verið sterk án flugvélarinnar en ljósmyndarinn var þolinmóður og smellti af á hárréttu augnabliki. Marglaga, vel uppbyggð og afar falleg mynd að mati dómnefndar en um leið þrungin merkingu.“
Fréttamynd ársins 2024: Eggert Jóhannesson
Umsögn dómnefndar: „Fréttamynd ársins fangar augnablik sem breytti sögunni, tímapunktinn þegar þjóðin áttaði sig endanlega á alvarleika stöðunnar í Grindavík. Mannslíf hafði tapast, skilningur okkar á aðstæðum breyst, vendipunkti var náð. Myndin fangar nöturleikann vel og gefur góða tilfinningu fyrir umfangi björgunaraðgerða og hversu erfiðar þær voru. Aðstæður á vettvangi voru afar krefjandi fyrir björgunarfólk og vafalaust einnig fyrir ljósmyndara að störfum. Um hættusvæði var að ræða, aðgangur takmarkaður, veður slæmt.
Ljósmyndari staðsetur sig fullkomlega; sýnir okkur atburðinn vel og minnir á að sprungan er ekki staðsett á víðavangi heldur alveg við hús, hús sem stendur að því er virðist á engu. Aðstæður hamla ekki ljósmyndaranum við störf sín heldur nýtir hann þær sér í hag og bleytan á linsunni bætir dýpt í myndina, endurspeglar aðstæður með áþreifanlegum hætti. Myndefnið er vel rammað inn og þótt segja megi að ró sé yfir, má skynja þungann undir. Yfir vettvangi hanga síðan rauð flögg, sem er einstaklega táknrænt."