Gullmerki BÍ

Reglugerð gullmerkis Blaðamannafélags Íslands

1. Merkið heitir gullmerki Blaðamannafélags Íslands

2. Merkið geta þeir félagar í Blaðamannafélagi Íslands fengið sem helgað hafa lífsstarf sitt blaðamennsku og/eða hagsmunum blaðamannastéttarinnar og/eða starfað hafa sem blaðamenn í að minnsta kosti 40 ár.

3. Stjórn Blaðamannafélags Íslands ákveður á hverjum tíma hverjir uppfylla ofangreind skilyrði og fer yfir það fyrir aðalfund ár hvert.

4. Stjórn Blaðamannafélags Íslands skal halda lista um þá sem fengið hafa gullmerki BÍ.