- Félagið & fagið
- BÍ
- Faglegt
- Siðavefur
- Lög og reglugerðir tengdar blaðamennsku
- Blaðamaðurinn
- Ritstjórnarlegt sjálfstæði
- Aðgengi að hættusvæðum
- Viðburðir
- Verðlaun
- Atvinnutorg
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Blaðamannafélag Íslands boðar til pressukvölds þriðjudaginn 4. febrúar kl 20:00 um heiftúðlega orðræðu stjórnmálamanna í garð blaðamanna.
Fjölmiðlafrelsi hefur dregist saman á Íslandi síðastliðinn áratug samkvæmt rannsókn samtakanna Blaðamenn án landamæra sem segja ástæðuna meðal annars þá að blaðamenn á Íslandi verði í auknum mæli fyrir meiðandi gagnrýni af hálfu stjórnmálamanna og þeir upplifi aukinn þrýsting í sinn garð.
Nýleg ummæli Ingu Sæland, ráðherra félags- og húsnæðismála, vegna fréttaflutnings um styrki til stjórnmálaflokka og símtals við skólastjóra Borgarholtsskóla, er einungis nýjasta dæmið um skaðlega, ómálefnalega gagnrýni valdamanna á blaðamenn. Aðeins mánuður er síðan Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, gerði lítið úr blaðamanni í Kryddsíldinni og kallaði umfjöllun um landsfund „blaðamannablaður.”
Víða um heim grafa stjórnmálamenn markvisst undan trausti til fjölmiðla og trúverðugleika blaðamanna með neikvæðri orðræðu, málaferlum og lagasetningu sem dregur úr fjölmiðlafrelsi og öryggi blaðamanna.
En hver er staðan á Íslandi og hvað er til ráða? Hvernig er hægt að stemma stigu við ómálefnalegri gagnrýni hér á landi og auka vitund valdafólks um mikilvægi blaðamennsku og frjálsra fjölmiðla? Blaðamannafélag Íslands býður til samtals um málin þriðjudaginn 4. febrúar í húsakynnum félagsins, Síðumúla 23.
Andrea Sigurðardóttir, blaðamaður Morgunblaðsins, og Kolbeinn Tumi Daðason, fréttastjóri Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar verða með stuttar framsögur og í kjölfarið verður opnað fyrir umræður.
Boðið verður upp á léttar veigar.