- Félagið & fagið
- BÍ
- Faglegt
- Atvinnutorg
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Magnús fæddist á Húsavík. Hann stundaði nám við Kaupmannahafnarháskóla og varð sýslumaður Dalamanna einungis 22 ára að aldri árið 1754. Magnús var mikill jarðræktarfrömuður og stundaði tilraunir í garð- og trjárækt. Hann var einn helsti forsvarsmaður Hrappseyjarprentsmiðju og gaf út um þriggja ára skeið Islandske Maaneds Tidender, fyrsta tímarit Íslendinga. Var hann því fyrstur Íslendinga til að hefja blaðaútgáfu.