- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Hádegisfundur miðvikudaginn 8. maí kl. 12-14
á Grand hóteli
Á íslenska sér framtíð í tölvuheiminum?
Twitter umræður: @SkyIceland #islenska
Sprenging er að verða í efni og lausnum sem Íslendingar hafa aðgang að á netinu. Það er sífellt stærri ögrun að íslenska allt þetta efni. Fleiri þjóðir og tungumálasvæði standa frami fyrir sama verkefni.
Á Íslandi er hópur einstaklinga sem hefur látið sig mál þetta varða. Á hádegisfundi Ský munum við fá innsýn í verkefni og verkfæri sem gerð hafa verið til að auðvelda okkur það að eiga samskipti við tölvur á íslensku.
Á fundinum verður leitast við að gefa yfirlit yfir íslensk máltækniverkefni.
Einnig verður 5. útgáfa Tölvuorðasafns Orðanefndar Skýrslutæknifélags Íslands opnað formlega á fundinum.
Fundurinn er fyrir alla sem hafa áhuga á þýðingum, varðveislu íslenskrar tungu og samskiptum manns og tölvu.
Dagskrá:
11:45-12:00 Afhending ráðstefnugagna
12:00-12:20 Fundur settur matur borinn fram
12:15-12:40 Ávarp og formleg opnun 5. útgáfu Tölvuorðasafns
Kynning á 5. útgáfu Tölvuorðasafnsins
Sigrún Helgadóttir, orðanefnd Skýrslutæknifélags Íslands
Kveðja til orðanefndar
Sigrún Gunnarsdóttir, formaður stjórnar Ský
12:40-13:00 Settu ríplætúol á meilið og séséaðu á mig
Eða gætum við kannski talað um tölvur á íslensku?
Haraldur Bernharðsson, Íslenskri málnefnd
13:00-13:20 Opin málföng í þágu fyrirtækja og almennings
Eiríkur Rögnvaldsson, Háskóla Íslands
13:20-13:40 Talgreining á íslensku hvað þarf til?
Jón Guðnason, Háskólanum í Reykjavík
13:40-14:00 Hvaða þýðingu hefur máltækni fyrir atvinnulífið
Garðar Þ. Guðgeirsson, Tryggingamiðstöðinni
14:00 Fundi slitið
Fundarstjóri: Hjörtur Grétarsson, stjórn Ský
Matseðill: Hunangsgljáð kalkúnabringa með ávaxta- og ostafyllingu, rauðlauks confit og supremesósu.
Kaffi/te og konfekt á eftir.
Verð fyrir félagsmenn Ský: 4.900 kr.
Verð fyrir utanfélagsmenn: 7.900 kr.
Verð fyrir fólk utan vinnumarkaðar: 3.000 kr.