- Félagið & fagið
- BÍ
- Faglegt
- Siðavefur
- Lög og reglugerðir tengdar blaðamennsku
- Blaðamaðurinn
- Ritstjórnarlegt sjálfstæði
- Aðgengi að hættusvæðum
- Viðburðir
- Verðlaun
- Atvinnutorg
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Ath að uppselt er á námskeiðið
Blaðamannafélagið leggur sig fram við að bjóða félagsfólki upp á öflugt fræðslustarf og endurmenntun. Fyrsta námskeið ársins á vegum félagsins er metnaðarfullt tveggja daga námskeið um hagnýtingu gervigreindar í blaðamennsku dagana 6. -7. mars undir handleiðslu Rune Ytreberg, ritstjóra og verðlaunablaðamanns frá Noregi sem er einn sá færasti í heiminum þegar kemur að gervigreind og gagnablaðamennsku.
Um námskeiðið
Gervigreind (AI) veitir blaðamönnum gríðarlegt vald til að styrkja og endurnýja blaðamennsku. Á þessu námskeiði könnum við gervigreindarverkfæri sem blaðamenn geta notað til að styðja við bæði daglegar fréttir og rannsóknarblaðamennsku. Með hagnýtum æfingum læra blaðamenn háþróaða notkun Chat GPT, Claude, Perplexity og annarra helstu gervigreindarverkfæra. Námskeiðið veitir ítarlega þjálfun í að hanna skipanir (e. prompt) fyrir gervigreind og því að gera nákvæmar leiðbeiningar fyrir “precision journalism” eða gagnablaðamennsku. Þátttakendur munu læra að setja upp persónulegan og sérsniðinn gervigreindaraðstoðarmann sem hjálpar við að safna, rannsaka og greina heimildir á öruggan hátt. Þátttakendur í námskeiðinu geta komið með eigin verkefni og frumheimildir sem þeir vilja rannsaka og vinna efni upp úr með aðstoð gervigreindar.
Fullt gjald fyrir tveggja daga námskeið er 72.000 krónur á mann. Endurmenntunar- og háskólasjóður BÍ niðurgreiðir helming af gjaldi námskeiðs fyrir fullgilda sjóðfélaga, eða 36.000 kr.* Auk þess sem hægt er að sækja um námskeiðsstyrk hjá BÍ fyrir hinum helmingnum. Innifalið í námskeiðsgjaldinu er hádegismatur og kaffiveitingar.
Félagar í FF fá 12.000 kr. niðurgreiddar af sjóðnum en geta einnig sótt um styrk fyrir námskeiðinu í Fræðslusjóð RÚV.
Lausamenn geta skráð sig á námskeiðið gegn fullu gjaldi en geta einnig nýtt sinn námskeiðsstyrk, allt að 25.000 kr, á móti kostnaði.
Félagsfólk á landsbyggðinni sem vill sækja námskeiðið getur einnig sótt um ferðastyrk.
Námskeið í hagnýtingu gervigreindar fyrir blaðamenn er hluti af fræðsluáætlun BÍ sem nánar verður kynnt félagsmönnum á næstunni. Í starfsáætlun stjórnar BÍ segir að félagið hyggist stuðla að endur- og símenntun með öllum tiltækum ráðum, m.a. með þátttöku í ráðstefnuhaldi og með því að halda sérstök endurmenntunarnámskeið um tiltekin efni.
Um Rune Ytreberg
Kennari er Rune Ytreberg, en hann hefur haldið námskeið og vinnusmiðjur um gervigreind fyrir blaðamenn í Svíþjóð, Noregi, Lettlandi og víðar. Rune Ytreberg er yfirmaður rannsóknarstofu gagnablaðamennsku hjá dagblaðinu iTromsø, sem notar gervigreind til að búa til ný ritstjórnartæki fyrir 70 dagblöð innan Polaris Media Group. Hann hlaut verðlaun sem „vefhaus ársins“ í Noregi í nóvember 2024, hlaut norsku gagnablaðamennskuverðlaunin 2024 fyrir nýsköpun og þróun á gervigreindaraðstoðarmanni fyrir rannsóknarblaðamennsku og hefur auk þess hlotið norsku SKUP verðlaunin fyrir 20 árum fyrir nýstárlega rannsóknarblaðamennsku. Hann var eini norræni fjölmiðlaleiðtoginn sem valinn var til að vera hluti af fyrstu rannsóknarstofunni í gervigreind og blaðamennsku hjá J+ CUNY á síðasta ári. Ytreberg og hans teymi hafa þróað snjallmennið DJINN með aðstoð gervigreindar en spjallmennið komst í úrslit á INMA Global Media verðlaununum á síðasta ári fyrir bestu innri notkun gervigreindar. Í apríl á þessu ári mun Ytreberg hefja doktorsnám í hagnýtri gervigreind á fréttastofum, styrkt af norska rannsóknarráðinu.
ENGLISH
AI Workshop in Precision Journalism
Artificial intelligence (AI) gives journalists immense power to strengthen and renew journalism. In this workshop, we explore AI tools journalists can use to strengthen both daily news and investigative journalism.
Through hands-on exercises, journalists learn advanced use of Chat GPT, Claude, Perplexity and other key AI tools. The workshop provides thorough training in prompt engineering and creating instructions for precision journalism.
You'll learn to set up a personal and customized AI assistant that helps you gather, investigate and analyze sources securely.
You can bring your own project with source material you wish to investigate.
SIGN UP