- Félagið & fagið
- BÍ
- Faglegt
- Atvinnutorg
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Ingibjörg Þórðardóttir, ritstjóri stafrænna teyma CNN er einn aðalfyrirlesari Haustráðstefnu Advania í ár sem fram fer í Hörpu 21. september. Erindi Ingibjargar er á föstudagsmorgun og hefur yfirskriftina "Tækni og trúverðugleiki - Fréttaflutningur í sundruðum heimi".
Ingibjörg mun fjalla um stafræna miðlun og hvernig hnignun helstu dreifingaleiða undanfarinna ára, á borð við Facebook, hefur áhrif á dreifingu og framleiðslu fréttaefnis. Hún deilir reynslu sinni af því að stýra stafrænum miðlum CNN á heimsvísu. Í kynningu á erindi hennar segir m.a.: „Stafræn miðlun frétta hefur aldei verið flóknari en nú. Hnignun öflugustu dreifingaleiða undanfarinna ára, svo sem Facebook, hefur valdið uppnámi ekki bara í dreifingu fréttaefnis heldur framleiðslu efnisins líka. Hvernig er þá best að flytja fólki fréttir þegar stöðugt verður óljósara hvaða dreifingaleið er öflugust? Hvernig byggir miðill upp traust og trúverðugleika í umhverfi sem einkennist af tortryggni og sundrung?“
Nauðsynlegt er að skrá sig á ráðstefnuna en vefsiðu hennar má finna hér