- Félagið & fagið
- BÍ
- Faglegt
- Atvinnutorg
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Meistara- og diplómanám í fjölmiðla- og boðskiptafræðum í samstarfi Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri. Hægt að taka í fjarnámi. Sjá ítarlega lýsingu á náminu og einstökum námskeiðum í Framhaldsnámsbæklingi bls. 37-45: https://www.hi.is/sites/default/files/thbg/framhaldsbaekl_2019-20.pdf
Markmið háskólanna er að byggja upp öflugt rannsóknamiðað nám, ekki síst í ljósi mikils og vaxandi mikilvægis og áhrifa fjölmiðla í lífi fólks og samfélaginu í heild. Nám af þessu tagi hefur notið vaxandi vinsælda víða erlendis og mikil gróska er í rannsóknum erlendis á þessu sviði. Áhersla er lögð á að skoða íslenska fjölmiðla og íslenskan veruleika ekki síst í samhengi við það sem gerist annars staðar.
Meistara- og diplómanám í blaða- og fréttamennsku- Aðeins er hægt að byrja í diplómanáminu um áramót- meistaranámi á haustin: Nánari upplýsingar um námið og námskeiðum er á bls. 46-51 í Framhaldsnámsbæklinum: https://www.hi.is/sites/default/files/thbg/framhaldsbaekl_2019-20.pdf Námið er boðið í samstarfi við Félags- og mannvísindadeild HÍ.
Ítarlegur Framhaldsnámsbæklingur með öllum námsleiðum Stjórnmálafræðideildar, lýsingar á einstökum námskeiðum og yfirliti yfir kennara deildarinnar: https://www.hi.is/sites/default/files/thbg/framhaldsbaekl_2019-20.pdf
Umsóknarfrestir eru 15. okt. fyrir MA og MPA en 30. nóv. fyrir diplómanám. Diplómanám fæst metið inn í meistaranám. Þrjár námsleiðir mögulegar í fjarnámi.
Ekki eru tekin skólagjöld við HÍ, en nemendur greiða s.n. skráningargjald 55.000.- ef byrjað er um áramót, en 75.000.- fyrir námsárið ef byrjað er á haustin.
Umsóknareyðublað og upplýsingar um umsóknarferilinn: http://www.hi.is/adalvefur/umsokn_um_nam
Einnig eru í boði aðrar námsleiðir:
Við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands stunda nú hátt í 500 manns meistara- eða diplómanám á sjö mismunandi námsleiðum (sjá þær hér að neðan og ítarlegar í ofangreindum bæklingi).
Deildin og hennar samstarfsaðilar eru leiðandi hér á landi á öllum þessum sviðum og hafa á að skipa framúrskarandi kennurum. Inntökuskilyrði á allar línur eru BA, BS eða BEd próf í einhverri grein. 1. einkunn er skilyrði inntöku í meistaranám, en nemendur með lægri einkunn fá inngöngu í Diplómanám sé það í boði á viðkomandi námslínu. Nái þeir 1. einkunn komast þeir í meistaranámið. Bent er á að nemendur geta auk aðalgreinar tekið valfög á öðrum námslínum deildarinnar og þannig lagað námið að eigin þörfum og áhugasviði.
Hafið samband við undirritaðar ef frekari spurningar vakna eða vilji er til að ræða um þessa möguleika.
Margrét S. Björnsdóttir, msb@hi.is
Elva Ellertsdóttir, elva@hi.is
Margrét Þóra Einarsdóttir, margretthora@hi.is
Aðrar námslínur:
1. Opinber stjórnsýsla, meistara- og diplómanám, einnig í boði í fjarnámi:
Stjórnmálafræðideild HÍ er leiðandi í námi og rannsóknum á sviði opinberrar stjórnsýslu. Vorið 2017 var gerð könnun meðal allra sem lokið höfðu náminu og töldu lang flestir að námið hefði nýst þeim vel, bæði í starfi og starfsframa. Námið er skipulagt þannig að fólk geti tekið það samhliða starfi og þá á lengri tíma og fjölmargir gera það. Í náminu sitja reyndir stjórnendur hins opinbera af fjölda sviða, bæði ríkis og sveitarfélaga, ásamt fólki sem nýlega hefur lokið háskólanámi, og njóta hjá okkur leiðsagnar reyndra kennara og fagmanna. Sú blanda er einn styrkleika námsins, auk þess sem nemendur geta valið um þrettán mismunandi áherslusvið í náminu. Í boði er einnig sérhæft Diplómanám f. stjórnendur í heilbrigðisþjónustu https://www.hi.is/sites/default/files/thbg/baeklingur_diploma_opinb_heilbr_2019-20_org.pdf (Mótað í samstarfi við Hjúkrunarfræðideild og Viðskiptadeild HÍ).
Nánari upplýsingar um námið, lýsing á þessum námslínum og námskeiðum er á bls. 19-25 í Framhaldsnámsbæklingnum: https://www.hi.is/sites/default/files/thbg/framhaldsbaekl_2019-20.pdf
2. Alþjóðasamskipti, meistara- og diplómanám: Stjórnmálafræðideild er eina íslenska háskóladeildin sem býður nám í alþjóðasamskiptum, en umfang alþjóðasamskipta af margvíslegu tagi og þátttaka Íslands í starfi alþjóðastofnana og -samtaka vex stöðugt og kallar á starfsfólk með þekkingu á því sviði. Námið mætir þörf fyrirtækja, samtaka og hins opinbera að þessu leyti og hefur á að skipa framúrskarandi kennurum. Upplýsingar um námið og lýsingar á námskeiðum má sjá á bls. 5-15 í Framhaldsnámsbæklingnum: https://www.hi.is/sites/default/files/thbg/framhaldsbaekl_2019-20.pdf
3. Kynjafræði- og hagnýt jafnréttisfræðsla-meistara- og diplómanám, hægt að taka að verulegu leyti í fjarnámi: Nám í kynjafræði og hagnýtri jafnréttisfræðslu við Stjórnmálafræðideild skapar fólki óteljandi starfsmöguleika. Fólk með jafnréttis- og kynjafræðimenntun starfar við kennslu- og fræðastörf, fjölmiðla- og upplýsingastörf, verkefna- og starfsmannastjórnun hjá hinu opinbera, og hjá hagsmuna- og frjálsum félagasamtökum. Allar upplýsingar um námið og lýsingar á námskeiðum eru á bls. 26-30 í Framhaldsnámsbæklingnum: https://www.hi.is/sites/default/files/thbg/framhaldsbaekl_2018-19_stjornmalaa_.pdf
4. Meistaranám í vestnorrænum fræðum- Aðeins hægt að byrja á haustin:: Boðið er upp á námið í samstarfi við Háskólann á Akureyri, Háskólann á Grænlandi, Háskólann í Færeyjum og Nord háskóla í Noregi og býður hver skóli upp á eigið sérsvið. Sérsvið Háskóla Íslands kallast Samfélag, náttúra og auðlindir. Náminu er ætlað að efla þekkingu á norðurslóðum, einkum og sér í lagi á viðfangsefnum sem lúta að sameiginlegum áskorunum vestnorrænu landanna. Náminu er ætlað að hvetja til hreyfanleika nemenda. Í upphafi námsins taka allir nemendur sameiginlegt inngangsnámskeið við Háskólann á Akureyri og allir nemar þurfa einnig að taka að lágmarki eina önn við einhvern samstarfsskólanna, í öðru landi en heimaskóli þeirra er í.
Frekari upplýsingar um námið er að finna á: www.westnordicstudies.net og íFramhaldsnámsbæklingnum bls. 33-36:https://www.hi.is/sites/default/files/thbg/framhaldsbaekl_2018-19_stjornmalaa_.pdf
5. Diplómanám í smáríkjafræðum- Aðeins hægt að byrja á haustin: Stjórnmálafræðideild HÍ er einnig leiðandi á sviði kennslu og rannsókna á þessu sviði. Í náminu er m.a. fjallað um þau tækifæri sem smáríki í alþjóðasamfélaginu standa frammi fyrir og þá veikleika sem þau þurfa að styrkja. Sérstök áhersla er á að greina stöðu smáríkja í Evrópusambandinu: Allar upplýsingar um námið og námskeiðin á bls. 8-15 í Framhaldsnámsbæklingnum: https://www.hi.is/sites/default/files/thbg/framhaldsbaekl_2019-20.pdf