- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Í dag, föstudaginn 5. febrúar klukkan 19-21, verður formlega tekinn í notkun nýr salur Blaðamannafélags Íslands í austurenda hússins í Síðumúla 23. Við þetta tækifæri verður salnum gefið nafn. Sömuleiðis verða nokkrir blaðamenn heiðraðir og hljóta gullmerki félagsins fyrir langan og farsælan feril í blaðamennsku og störf í þágu Blaðamannafélagsins. Matur og drykkur á boðstólum. Vinsamlegast skráið ykkur hér á heimasíðu BÍ press.is á skráningarhnapp á forsíðu, svo hægt sé að áætla nokkurn veginn fjölda þeirra sem hyggjast koma.
Eftirtaldir blaðamenn fá gullmerki félagsins: Freysteinn Jóhannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Gunnar V. Andrésson, Sigurdór Sigurdórsson, Sigmundur Ó. Steinarsson, Þröstur Haraldsson, Arnór G. Ragnarsson, Árni Jörgensen og Ágúst Ingi Jónsson.