- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Ekki náðist samkomulag á fundi samninganefndar BÍ og Samtaka atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara í dag. Því mun boðuð vinnustöðvun vefblaðamanna, ljósmyndara og tökumanna taka gildi á morgun. Vinnustöðvunin mun að þessu sinni standa í 12 tíma, frá kl 10.00 í fyrramálið og fram til 22.00 annað kvöld. Ekki er boðaður samningafundur fyrr en á þriðjudag, en að sögn Hjálmars Jónssonar virðist vera pattstaða þar sem SA sitji enn við sinn keip og tali um það sama og áður. Slíkt hafi hins vegar verið kolfellt í atkvæðagreiðslu meðal blaðamanna og sérstakt að SA geri ekkert með slík skilaboð.
Skilaboðin í hnotskurn eru þessi: EKKERT fer inn á vefinn milli klukkan 10 og 22 og ljósmyndarar og tökumenn fara ekki í tökur! Verktakar vinna ekki, utanfélagsfólk vinnur ekki, fólk í öðrum stéttarfélögum vinnur ekki. Verkfallið nær hins vegar ekki til félaga í Félagi fréttamanna á RÚV eða félaga í Rafiðnaðarsambandinu á Sýn.