- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Vakin er athygli á að umsóknarfrestur vegna sumardvalar í orlofshúsum BÍ rennur út föstudaginn 15. apríl næstkomandi. Nánari upplýsingar um húsin, úthlutunartímabil, kostnað og umsóknir er að finna í nýju tölublaði af Blaðamanninum sem ætti að hafa borist ykkur en er einnig á rafrænu formi hér á síðunni.
Veiðikortin eru áfram til sölu á BÍ á sama verði og verið hefur undanfarin ár.
Þá eru einnig til sölu Flugleiðabréf til þeirra sem eru fullgildir félagar í BÍ. Bréfin kosta 23 þús og gilda sem 30 þús. kr. greiðsla upp í millilandaflug með Flugleiðum.