- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Frjálsi háskólinn í Berlín hefur auglýst eftir umsóknum um námsdvöl í Berlín fyrir reynda blaðamenn í Evrópu eða í Bandaríkjum. Umsóknarfrestur sem áður hafði verið auglýstur til 28. febrúar hefur nú verið framlengdur til 31.mars 2015.
Um er að ræða styrk til dvalar við Frjálsa háskólann eða Freie Universität. Blaðamenn geta fengið tækifæri til tveggja anna dvalar við Freie Universitaet á meðan þeir eru í leyfi frá stöðum sínum í heimalandinu. Prógrammið hefst í október 2015og stendur fram í júlí 2016.
Einu skilyrðin sem uppfylla þarf er að viðkomandi sé starfandi blaðamaður og að hann hyggist vinna að fræðilegu verkefni á sviði blaðamennsku. Fjárhagslegi styrkurinn nemur um 1.500 evrum á mánuði en getur þó verið meiri eða minni eftir því hvers konar styrk er um að ræða..
Sjá frekari upplýsingar hér