- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Í haust gefst íslenskum blaðamönnum tækifæri til að setjast á námskeið með einum af reyndasta sjónvarpsmanni Danmerkur, Torben Schou. Námskeiðið heitir frásögn í sjónvarpi (TV-storytelling) og verður haldið í Reykjavík dagana 15. og 16. október. Þar miðlar Torben Schou af reynslu sinni á sviði gerða heimildamynda, frétta, íþrótta og skemmtunar fyrir sjónvarp. Það er Norræni blaðamannaskólinn NJC sem býður þessi námskeið. (Endurmenntunarsjóður Blaðamannafélagins veitir styrki til félagsmanna vegna þessa námskeiðs). Staður fyrir námskeiðið verður tilkynntur síðar.
Aðgangur er takmarkaður á námskeiðið og allar nánari upplýsingar veitir Sigrún Stefánsdóttir, sviðsforseti hug- og félagsvísindadeildar HA og umsóknir um setu á námskeiðinu ættu einnig að berast til hennar. Sigrún hefur netfangið sigruns@unak.is