- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Verðlaunanefnd Blaðamannaverðlauna BÍ óskar eftir tilnefningum til verðlauna fyrir árið 2019, en verðlaunin verða veitt í 17. skipti þann 6. mars næstkomandi. Tilnefningar dómnefndar verða kynntar viku fyrir afhendingu en skilafrestur tilnefninga til dómnefndar er kl. 12 á hádegi laugardaginn 1. febrúar 2020.
Eins og síðustu ár verða verðlaunin veitt í fjórum flokkum:
Hægt er að senda inn tilnefningar til verðlaunanna til skrifstofu Blaðamannafélagsins í Síðumúla 23 á auglýstum skrifstofutíma ásamt gögnum með röksemdafærslu fyrir tilnefningunni. Jafnframt er hægt að senda tilnefningar inn rafrænt með hnappi sem er hér til hægri á forsíðu vefsins.
Tilnefningar dómnefndar verða gerðar kunnar föstudaginn 28. febrúar. Viku síðar, þann 6. mars, verða verðlaunin sjálf afhent.