- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Ástæða er til að minna á að skilafrestur tilnefninga til dómnefndar vegna Blaðamannaverðlauna 2014 er föstudagurinn 23. janúar. Hægt er að senda inn tilnefningar til verðlaunanna á skrifstofu Blaðamannafélagsins í Síðumúla 23 á auglýstum skrifstofutíma ásamt gögnum með röksemdafærslu fyrir tilnefningunni. Jafnframt er hægt að tilnefna með rafrænum hætti með hnappnum Tilnefnið hér hér til hliðar á síðunni.
Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands verða veitt í 12. skipti þann 28. febrúar næstkomandi. Eins og á síðasta ári verða verðlaunin veitt í fjórum flokkum en þeir eru þessir:
Besta umfjöllun ársins 2014
Viðtal ársins 2014
Rannsóknarblaðamennska ársins 2014
Blaðamannaverðlaun ársins 2014
Tilnefningar dómnefndar verða síðan gerðar kunnar í laugardaginn 21. febrúar og viku síðar, þann 28. febrúar verða verðlaunin sjálf afhent samhliða því að sýning Blaðaljósmyndarafélagsins Myndir ársins verður opnuð.