- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands verða veitt í 11. skipti þann 15. febrúar næstkomandi. Tilnefningar dómnefndar verða kynntar viku fyrir afhendingu en skilafrestur tilnefninga til dómnefndar er föstudagurinn 17. janúar.
Eins og á síðasta ári verða verðlaunin veitt í fjórum flokkum en þeir eru þessir:
Besta umfjöllun ársins 2013
Viðtal ársins 2013
Rannsóknarblaðamennska ársins 2013
Blaðamannaverðlaun ársins 2013
Hægt er að senda inn tilnefningar til verðlaunanna á skrifstofu Blaðamannafélagsins í Síðumúla 23 á auglýstum skrifstofutíma ásamt gögnum með röksemdafærslu fyrir tilnefningunni. Jafnframt er hægt að tilnefna með rafrænum hætti.
Tilnefningar dómnefndar verða síðan gerðar kunnar í laugardaginn 8. febrúar og viku síðar, þann 15. febrúar verða verðlaunin sjálf afhent.