- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Á árinu 2020 urðu meira en tvöfalt fleiri fjölmiðlamenn fyrir árásum í Þýskalandi borið saman við nokkur ár þar á undan. Þetta kemur fram í talnaefni frá þýsku sambandsstjórninni. Mótmæli af ýmsu tagi eru nú skilgreind sem hættusvæði (high-risk) fyrir blaðamenn, og lögregla hefur iðulega ekki getað tryggt öryggi fjölmiðlafólks. Bæði Evrópusamband blaðamanna og aðildarfölög þess í Þýskalandi hafa nú krafist þess að gripið verði til sérstakra ráðstafana til að auka öryggi fjölmiðlafólks.