- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Eftirfarandi álktun var samþykkt einróma á fundi starfsmanna Fréttablaðsins og Vísis í gær, 8. ágúst 2016, en umtalsverð óánægja er vegna uppsagnar Pjeturs Sigurðssonar yfirmanns ljósmyndadeildar:
"Til stjórnarformanns 365, forstjóra og aðalritstjóra.
Við, starfsmenn Fréttablaðsins og Vísis, mótmælum harðlega óverðskuldaðri uppsögn yfirmanns ljósmyndadeildar 365, Pjeturs Sigurðssonar. Jafnframt eru hörmuð óásættanleg vinnubrögð aðalritstjóra og yfirstjórnar fyrirtækisins í aðdraganda uppsagnar Pjeturs og við kynningu á henni til samstarfsmanna hans.
Við beinum því til stjórnar og stjórnenda 365 að tryggja að slík framganga, sem grefur undan faglegum grunni og trúverðugleika fréttastofunnar, geti ekki endurtekið sig.
Pjetur Sigurðsson hefur þriggja áratuga reynslu sem blaðaljósmyndari. Þar af þrettán ára starfsferil hjá Fréttablaðinu og Vísi. Hann á að baki farsælan feril og hefur reynst góður samstarfsmaður.
Við teljum að öll meðferð málsins hafi skaðað alvarlega það traust sem verður að ríkja innan ritstjórnarinnar."