- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Samkvæmt árlegri skýrslu um frelsi á Internetinu sem Freedom House birtir var meira um takmarkanir á tjáningu á netinu í ár en í fyrra og er þetta sjötta árið í röð sem netfrelsi minnkar. Um 2/3 þeirra sem á annað borð nota Internetið (67%) búa í ríkjum þar sem gagnrýni á stjórnvöld, her eða ráðandi fjölskyldur er háð ritskoðun. Þá kemur í ljós að fólk sem notar samfélagsmiðla getur nú víða átt von á áður óþekktum refsingum, en stjórnvöld í 38 ríkjum hafa handtekið fólk á grundvelli einhvers sem viðkomandi setti fram á samfélagsmiðli. Á heimsvísu búa um 27% netnotenda í ríkjum sem hafa handtekið fólk fyrir að hafa póstað, deilt, eða sett hlekk á efni á Facebook
Þá virðist sem stjórnvöld víða séu í vaxandi mæli að beina athyglinni að skilaboðasmáforritum s.s. WhatsApp og Telegram, en hægt er að dreifa upplýsingum með skjótum hætti eftir þessum leiðum.