- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Sjónvarpsstöðin Skjárinn er fjölmiðlameistari ársins 2014. Skjárinn vann lið Pressunar/Eyjunar í úrslitaleik 2-1 og fór taplaus í gegnum allt mótið. Skjárinn gerði einungis jafntefli við lið fotbolta.net sem lenti í þriðja sæti eftir sigur á liði Stövar 2 í leik um þriðja sætið. Fotbolti.net var jafnframt meistari síðustu tveggja ára og var í dauðafæri til að vinna farandbikar sem keppt hefur verið um frá upphafi, en vinna þarf mótið þrjú ár í röð til þess að vinna hann til eignar. Morgunblaðið lenti svo í fimmta sæti eftir sigur á liði K100. Tíu lið tóku þátt í keppninni að þessu sinni.