- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Samkomulag hefur náðst um kaup 21st Century Fox, fyrirtækis Ruperts Murdochs, á rúmlega 60% hlut í sjónvarpsstöðinni Sky. Þar með eignast félag Murdochs allt hlutaféð í Sky en áður átti það tæp 40%. Þetta hefur orðið til þess að ýmsir hafa viðrað áhyggjur vegna gríðarlegra ítaka Murdocs á breskum fjölmiðlamarkaði, en stórblöðin The Sun og The Times eru nú þegar í hans eigu.