- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Rassemblement en hommage des victimes de l'attentat perpétré ce jour contre le journal Charlie Hebdo dans le jardin de l'ambassade de France ( Við skulum safnast saman fyrir framan franska sendiráðið til stuðnings fórnarlamba hryðjuverkaárásarinnar á höfuðstöðvar Charlie Hebdo í dag).
Þetta er yfirskrift fundarboðenda sem sett var á Facebook í gærkvöldi fyrir samstöðufund sem boðað hefur verið til klukkan 18 í kvöld við franska sendiráðið vegna hryðjuverkaárásarinnar í París í gær. Aðstandendur hvetja fundargesti til að mæta með penna eða blýanta en þannig hafa morðin á skopmyndateiknurunum verið fordæmd á táknrænan hátt. Blaðamannafélagið tekur undir þá áskorun!