- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Á morgun, 12. janúar, mun verða lokað fyrir móttöku á tillögum um nafn á nýjan sal Blaðamannafélagsins og þeir sem enn vilja koma með tillögu þurfa því að drífa í því. Eins og greint hefur verið frá bæði hér á press.is og í Blaðamanninum hefur Blaðamannafélagið útbúið glæsilegan veislusal í húsakynnum sínum við Síðumúla 23. Líkt og Hjálmar Jónsson, formaður BÍ, boðaði í síðasta hefti Blaðamannsins fer nú fram samkeppni um nafn á veislusalinn, sem verður í raun félagsmiðstöð blaðamanna, og verða veitt verðlaun fyrir það nafn sem valið er. Verðlaunin eru ein vika að eigin vali í einu af orlofshúsum.