- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Blaðamannafélag Íslands og Myllusetur, rekstrarfélag Viðskiptablaðsins, hafa undirritað kjarasamning, sem gildir til hausts 2022. Samningurinn er samhljóða þeim samningi sem gerður var við Samtök atvinnulífsins í síðustu viku, auk þess sem í samningnum er að finna ákvæði og útfærslu hvað varðar framsal á höfundarrétti. Samningurinn verður kynntur og um hann greidd atkvæði á morgun, fimmtudag.
Þar með hefur Blaðamannafélagið undirritað kjarasamninga við alla samningsaðila sína, sem gilda í rúm tvö ár til hausts 2022. Rafræn atkvæðagreiðsla stendur nú yfir um almennan kjarasamning Blaðamannafélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins og lýkur þeirri atkvæðagreiðslu á föstudag.