- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Er penninn máttugri en sverðið? Hverjar eru mögulegar ástæður voðaverkanna á ritstjórnarskrifstofum Charlie Hebdo? Af hverju er myndbirtingabann í islam? Hvaða áhrif geta voðaverkin haft á tjáningarfrelsi okkar og önnur mannréttindi? Er tjáningarfrelsið aðeins mikilvægt á tyllidögum?
Þetta og fleira verður rætt á hádegisfundi fjölmiðlanefndar og Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands sem fram fer í stofu 101 í Odda, Háskóla Íslands, þriðjudaginn 20. janúar 2015. Fundurinn hefst kl. 11:50 og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Frummælendur verða Róbert H. Haraldsson, prófessor í heimspeki, Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar og Þórir Jónsson Hraundal sagnfræðingur.
Þórir Jónsson Hraundal talar um bakgrunn myndbirtingabanns í islam, ýmsar algengar hugmyndir Vesturlandabúa um múslima og trú þeirra, og veltir upp nokkrum spurningum um mögulegar undirliggjandi ástæður voðaverkanna í París.
Elfa Ýr Gylfadóttir fjallar um hvaða áhrif voðaverkin í París geti haft á tjáningarfrelsi og borgaraleg réttindi á Vesturlöndum.
Elfa Ýr fjallar jafnframt um hvað beri að varast og leggur áherslu á að tjáningarfrelsi eru réttindi sem við höfum aflað okkur á löngum tíma og þau þurfi að verja og vernda.
Róbert H. Haraldsson fjallar um tjáningarfrelsið og mörk þess í heimspekilegu samhengi og rétt einstaklingsins til að hugsa frjálslega og tjá hugsanir sínar óþvingað og óttalaust. Hannt fjallar sérstaklega um tjáningarfrelsið í tengslum við birtingu trúarlegra skopmynda í Jyllands-Posten og í tímaritinu Charlie Hebdo.
Að framsögum loknum verða fyrirspurnir og almennar umræður.
Fundarstjóri verður Salvör Nordal forstöðumaður Siðfræðistofnunar HÍ og nefndarmaður í fjölmiðlanefnd.
Miðað er við að fundurinn standi til kl. 13:10.