- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Evrópsku blaðamannaverðlaun hafa nú óskað eftir tilnefningum til verðlaunanna og er tilnefningarfrestur til 18. desember næstkomandi. Gæði í blaðamennsku eru nauðsynleg heilbrigðu lýðræði og verðlaunin miða að því að hvetja til og draga athyglina að góðri blaðamennsku.
Verðlaunin eru veitt í fjórum flokkum og er verðlaunafé í hverjum um sig 10.000 evrur eða tæplega 1,5 milljón krónur. Flokkarnir eru þessir:
Verðlaun fyrir framúrskarandi skrif
Verðlaun fyrir framúrskarandi umfjöllun
Verðlaun fyrir rannsóknarblaðamennsku
Verðlaun fyrir nýsköpun eða nýmæli
Efni sem tilnefnt er þarf að hafa birst á tímabilinu frá 1. Desember 2014 og 31. Desember 2015 og blaðamenn sem búa og starfa í Evrópu eru gjaldgengir sem og þeir blaðamenn sem starfa fyrir evrópsk fjölmiðlafyrirtæki.
Sjá einnig hér