- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Donald Trump hefur fengið mikla fjölmiðlaathygli í kosningabaráttu sinni um að verða útnefndur sem frambjóðandi Repúblikana í forsetakosningunum í Bandaríkjunum. Þessi fjölmiðlaathygli er umræðuefni margra fjölmiðlaáhugamanna vegna þess að hún er annars eðlis en yfirleitt er hjá frambjóðendum, sem þurfa að byggja mikið á auglýsingum. Fjölmiðlaathygli Trumps er hins vegar ókeypis og til komin vegna ummæla hans og þess að hann virðist óhræddur við að segja hluti sem samkvæmt öllu venjulegu (amerísku) fréttamati teljast fréttnæmir. Í Colubia Journalism Review má sjá áhugaverða um þetta mál.