- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Mánudaginn 7. september verður haldinn fundur í fundarsal Þjóðminjasafnsins undir yfirskriftinni Ógnir við tjáningarfrelsi í fjölmiðlum og á internetinu. Dunja Mijatovic, fulltrúi ÖSE fyrir frelsi fjölmiðla, mun fjalla um þær áskoranir sem frjálsir fjölmiðlar og tjáningarfrelsi standa frammi fyrir á ÖSE svæðinu. Í erindi sínu mun hún meðal annars ræða um hvernig áróðri er markvisst beitt í milliríkjaátökum og segja frá því hvernig öryggi blaðamanna og bloggara er víða ógnað, ekki síst kvenna sem starfa í fjölmiðlum. Fundurinn hefst kl 12.15 og stendur til kl 13.30.
Um Dunja Mijatovic hér