- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Evrópusamband blaðamanna hefur vakið athygli á heimasíðu sinni á skýrslu Dunja Mijatovi?, talsmanni Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (OSCE ) í málefnum fjölmiðla og tjáningarfreslis þar sem hún fjallar um ástand mála í Evrópu í dag. Dunja Mijatovi?, sem var hér á Íslandi í fyrra og flutti þá opinn fyrirlestur um fjölmiðlafrelsi, kemur víða við í skýrslu sinni og fjallar meðal annars um öryggismál blaðamanna og fréttir í samfélagsmiðlum.
Varðandi öryggi blaðamanna segir hún meðal annars: Eins og þið vitið er öryggi blaðamanna ofarlega á minni dagskrá. Enn viðgengst það að ofbeldi gegn blaðamönnum er látið órannsakað og fyrir það er ekki refsað. Þessu verður að linna. Til þess að auðvelda aðildarríkjum að takast á við og vakta þessi ofbeldisbrot hefur skrifstofa fjölmiðla í OSCE tekið saman lista yfir blaðamenn sem drepnir hafa verið í ríkjum OSCE frá 1992 ásamt grundvallar uplýsingum um hvernig hefur gengið að rannsaka, saksækja og dæma þá sem ábyrgð á slíkum drápum bera.
Um samfélagsmiðla og handan-sannleik (post-truth) kemur m.a. fram í skýrslunni að það komi ekki alveg á óvart að í tilraunum fyrirtækja eins og Faceboock séu viðbrögðin við falsfréttum þau að reyna að breyta algorythmum þannig að þeir finni og komi í veg fyrir birtingu tilbúinna frétta. Það sé liður fyrirtækjanna í að lágmarka skaðann af umræðunni upp á síðkastið. En í því liggur líka önnur hætta, segir Mijatovi?. Vegna þess að í raun getur þetta gert tjáningarfrelsinu meira ógagn en nokkur lygi getur gert, hversu skaðleg sem sú lygi kann að vera, segir hún enn fremur. Bendir hún á að fyrir utan vandamálið sem felst í því að skilja á milli sannleika, skoðana og lygi þá sé það í sjálfu til þess fallið að skaða okkur öll eitthvað þegar hugmyndir og skoðanir eru útilokaðar eða jafnvel gerðar glæpsamlegar. Og í dag horfum við upp á saksóknir á grundvelli stjórnsýslu- og hegningarlaga vegna virkni á samfélagsmiðlum sem fela í sér að einhverjir hafa brugðist við einhverju sem sagt hefur verið á samfélagsmiðlum (að deila, endurbirta, hlekkja við, líka við eða skrifa ummæli). Slík refsigleði stuðlar að umhverfi ótta að mati Mijatovi? sem segir að þetta geti þróast yfir í beina ritskoðun sem í framhaldinu framkalli sjálfsritskoðun. Við skulum ekki fara offari í viðbrögðum okkar við fölskum fréttum og byggja enn einn vegginn að þessu sinni vegg í kringum Internetið, segir Mijatovi? í skýrslu sinni.