- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Anthony Bellanger heitir nýr framkvæmdastjóri Alþjóðasambands blaðamanna (IFJ). Ákvörðun um ráðningu Bellangers var tekin af framkvæmdastjórn IFJ í lok síðasta mánaðar og kemur hann í stað hinnar brasilísku Beth Costa sem gegndi stöðunni frá 2011.
Bellanger er margreyndur í fagfélagsstarfi blaðamanna en hann hefur um árabil starfað með franska blaðamannafélaginu SNJ og var framkvæmdastjóri þess frá 2011-2014. Þá hefur hann starfað sem aðstoðarframkvæmdastjóri IFJ frá 2014 þannig að hann þekkir vel til starfsemi alþjóðasambandsins. Bellanger er 42 ára og með doktorspróf í mannkynssögu. Hann hefur lengst at sínum starfsferli verið á prentmiðlum í Frakklandi.