- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Í nýrri samantektarskýrslu Samands norskra netfréttamiðla kemur fram að veffréttamiðlar eru í vaxandi mæli að leggja áherslu á hefðbundið ritstjórnarefni, þ.e. efni sem unnið er undir formerkjum blaðamennsku. Efni frá notendum hins vegar, s.s. blogg, myndir og athugasemdadálkar, er sífellt að minnka í mikilvægi. Samkvæmt skýrsluhöfundinum, Arne Krumsvik, prófessor við fjölmiðladeild í fagháskólans í Ósló, hefur sú tilhneiging fest sig í sessi að netmiðlar reiði sig í stöðugt minna mæli á efni frá notendum og allir þessir miðlar ritstýra betur því sem birt er. Efni af því tagi sem kemur frá notendum hefur flust að mestu leyti yfir á samfélagsmiðlana. Krumsvik bendir á að kenningar sem þóttu framsæknar fyrir nokkrum árum þess efnis að ritstýrt efni og óritstýrt væri að renna saman og fjölmiðlaneytendur væru að verða sem á ensku kallaðist prosumers (producer + consumer) eða hvoru tveggja í senn neytendur og framleiðendur ritstjórnarefnis, væri einfaldlega ekki að ganga eftir.
Sjá meira hér