- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
NJF, Samband norrænna blaðamannafélaga, hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun:
Samband norrænna blaðamannafélaga, Nordisk Journalistforbund, lýsir yfir áhyggjum af þróuninni sem er að verða á íslenskum fjölmiðlamarkaði. Stöð 2 hefur í 34 ár flutt almenningi á Íslandi sjónvarpsfréttir í opinni dagskrá, en nú eru þær aðeins aðgengilegar áskrifendum. Fyrir verulegan hluta Íslendinga er almenningsrútvarpið RÚV nú eini valkosturinn. Hvað sjónvarpsfréttir varðar. Samband norrænu blaðamannafélaganna gera í sjálfu sér ekki athugsemdir við þær viðskitpaákvarðanir sem Stöð 2 hefur tekið. Áhyggjur okkar eru hins vegar af neikvæðum áhrifum á fjölræði fjölmiðla á Íslandi, sem óumflýjanlega mun ógna fjölbreytileika til framtíðar. Þetta málefni var tekið til ítarlegrar umræðu á stafrænum fundi Sambands norrænu blaðamannafélaganna þriðjudaginn 26. janúar.
Fjölskipt og fjölbreytt fjölmiðlakerfi á Norðurlöndum og í Norður- og Vestur-Evrópu er mikilvægur þáttur í að efla lýðræði í þessum löndum. Það er því æskilegt og eðlilegt að stjórnvöld og lýðræðislegar stofnanir á Íslandi setji í forgang að standa vörð um slík grundvallar kerfi þegar fjölmiðlalandslagið er þróað í framtíðinni .
Ulrika Hyllert, formaður Samtaka sænskra blaðamanna
Tine Johansen, formaður Danska blaðamannafélagsins
Hanne Aho, forseti, Samtaka finnskra blaðamanna
Hege Iren Frantzen, formaður, Samtaka norskra blaðamanna
Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands