- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Siðanefnd BÍ hefur sent frá sér tvo efnisúrskurði í kærumálum og þrjá úrskurði um frávísanir. Efnislegu úrskurðirnir eru báðir þess efnis að viðkomandi blaðamenn/fjölmiðlar hafi ekki brotið siðareglur BÍ. Annars vegar er um að ræða kæru vegna myndbirtingar í þættinum Heimilisofbeldi á Stöð 2 sem Sindri Sindrason var með og hins vegar úrskurð um umfjöllun DV og fréttabladid.is um meint ofbeldismál hjá Orkuveitunni á Húsavík. Frávísanirnar á málum voru ýmist vegna þess að kærufrestur var liðinn (sjá hér og hér) eða að kærandi hafði ekki leitað eftir leiðréttingu já viðkomandi miðli.