- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Mynd árins að mati dómnefndar Myndar ársins sýningar Blaðaljósmyndarafélags Íslands á Sigtryggur Ari Jóhannsson. Sýning Blaðaljósmyndarfélagsins sem opnuð var um helgina stendur nú yfir í Gerðarsafni í Kópavogi. Í rökstuðningitómnefndar um mynd ársins, sem raunar var einnig valin fréttamynd ársins segir:
Þessi mynd getur ekki annað en hreyft við áhorfandanum. Viðfangsefnið ber traust til ljósmyndarans svo úr verður persónuleg túlkun á aðstæðum. Maðurinn er veikbyggður og viðkvæmur en augnaráð hans er grípandi og sterkt. Tómleikinn í kringum hann sýnir þann fábrotna raunveruleika og mikla óöryggi sem hælisleitendur á Íslandi búa við. Myndin minnir okkur á þær áskoranir sem hælisleitendur mæta í þeim löndum sem þeir leita til og hefur myndefnið því einnig skírskotun til alþjóðlegs vandamáls.
Sjá allar myndir og frekari umfjöllun hér