- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Varðandi ákvörðun lögreglunnar á Norðurlandi eystra, að kalla minnst fjóra blaðamenn til yfirheyrslu vegna gruns um brot gegn friðhelgi einkalífsins í tengslum við fréttaflutning um framferði fólks tengdu Samherja og kallaði sig skæruleiðadeild, hef ég þetta að segja sem formaður Blaðamannafélags Íslands:
Á þessum tímapunkti er ekki ljóst nákvæmlega um hvað blaðamennirnir, sem eru minnst fjórir, þau Þóra Arnórsdóttir, ristjóri Kveiks, Aðalsteinn Kjartansson á Stundinni, Arnar Þór Ingólfsson, blaðamaður Kjarnans, og Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, hafa unnið sér til saka til þess að verðskulda stöðu sakbornings við rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi. Þeim hefur verið sagt að þeir séu grunaðir um brot gegn friðhelgi einkalífsins með skrifum á fréttum unnum upp úr gögnum sem sýndu samskipti fólks tengdu Samherja, sem kallaði sig skæruliðadeild. Enginn hefur véfengt þessar fréttir og Samherji hefur síðan beðist afsökunar á því framferði sem þar var lýst.
Það er óskiljanlegt og í raun mjög alvarlegt að lögreglan á Norðurlandi eystra hafi ákveðið að kalla blaðamenn til yfirheyrslu vegna þess eins að skrifaðar voru fréttir upp úr gögnum sem þeir höfðu undir höndum. Það er grundvöllur starfs blaðamanna að vinna úr gögnum sem þeim berast. Lögreglan kallar hér blaðamenn til yfirheyrslu með réttarstöðu grunaðs um að hafa brotið gegn friðhelgi einkalífsins. Hvenær sem gögn eru þess eðlis að þau gætu talist sem brot gegn friðhelgi einkalífsins þarf blaðamaður að meta þau með tilliti til almannahagsmuna og meta hvort vegi þyngra, friðhelgi einkalífsins eða almannahagsmunir. Þegar almannahagsmunir vega þyngra er það aldrei spurning að slík gögn eigi að nota til grundvallar fréttum, sama hvernig gögnin eru fengin. Alþjóðastofnanir hafa lagt á það grundvallaráherslu að gætt sé fyllstu varkárni þegar blaðamenn eru rannsakaðir. Blaðamenn hafa, samkvæmt dómum Mannréttindadómstólsins, fullan rétt til og ber í raun skylda til þess að vernda heimildarmenn sína, hvort sem upplýsingar sem um ræðir eru fengnar með lögmætum eða ólögmætum hætti.
Af málavöxtum að dæma virðist sem það sé ætlun lögreglu að krefja blaðamenn um að gefa upp heimildarmenn sína. Það er beinlínis frumskylda blaðamanna að standa vörð um heimildarmenn sína, enda er kveðið á um slíkt í lögum og um það hafa margir dómar fallið. Að auki eru vart dæmi um það á síðustu árum eða áratugum að blaðamaður sé kallaður til yfirheyrslu þar sem hann er krafinn um að veita lögreglu upplýsingar um heimildarmenn sína, endar þykir flestum slíkt fráleit hugmynd og margir áratugir eru síðan slíkt mál fór síðast fyrir dómstóla.
Það sem er einna alvarlegast í þessu máli er að lögreglan á Akureyri virðist ekki átta sig á því að öll afskipti lögreglu af blaðamönnum þurfa að vera vel rökstudd og hafa skýran tilgang og að þörfin sé rík og ganga út frá þeirri ófrávíkjanlegu meginreglu að blaðamenn verndi heimildarmenn sína. Því er óskiljanlegt og nær óverjandi að lögreglan kalli blaðamenn til yfirheyrslu eingöngu til þess að fá þær upplýsingar frá þeim að þeir muni ekki gefa upp heimildarmenn sína. Það má beinlínis túlka sem óeðlileg afskipti lögreglu af starfi blaðamanna sem tefur þá að auki frá öðrum störfum á meðan og hefur þar af leiðandi hamlandi áhrif á störf þeirra. Evrópuráðið hefur bent á að þessu til viðbótar geti afskipti lögreglu sem þessi af blaðamönnum dregið úr vilja almennings til þess að láta blaðamönnum í té upplýsingar, sem hafi einnig áhrif á rétt almennings til upplýsinga.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður BÍ.