- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir eftir tilnefningum til verðlauna sem afhent verða á Degi íslenskrar náttúru. Annars vegar er um að ræða Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og hins vegar Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti. Tilnefningarfrestur er til 20. ágúst næstkomandi.
Fjölmiðlaverðlaunum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins er ætlað að hvetja til umfjöllunar um umhverfi og náttúru, hvort heldur er í því skyni að vekja athygli á einstakri náttúru landsins, benda á þær ógnir sem steðja að umhverfi og náttúru eða mikilvægi þess að vernda og verja umhverfi og náttúru til framtíðar.
Verðlaunin geta hlotið fjölmiðill, ritstjórn, blaða- eða fréttamaður, dagskrárgerðarfólk, ljósmyndari eða rithöfundur sem hefur skarað fram úr með umfjöllun sinni um umhverfismál og/eða íslenska náttúru undangengna tólf mánuði (tímabilið ágúst – ágúst). Til greina koma einstök verkefni eða heildarumfjöllun um náttúru og umhverfismál.
Þriggja manna dómnefnd skipuð fagfólki á sviði fjölmiðla velur vinningshafa úr innsendum tilnefningum en auk þess hefur dómnefnd svigrúm til að taka til skoðunar fjölmiðlaumfjöllun um umhverfi og náttúru utan tilnefninga.