- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Á hádegi í dag, 24. apríl, höfðu 145 kosið í formannskjöri í Blaðamannafélagi Íslands. Tveir eru í kjöri, þau Heimir Már Pétursson og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Á kjörskrá eru 553 þannig að kjörsóknin er því rétt rúm 26% það sem af er. Kjörfundur stendur til miðnættis á mánudag, 26. apríl, og er hægt að finna slóð á kosningakerfið í frétt hér fyrir ofan (við hlið myndarinnar).