- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Föstudaginn 22. janúar býður Blaðaljósmyndarafélag Íslands upp á fyrirlestur með Jan Grarup. Jan Grarup er danskur heimilda- og fréttaljósmyndari. Hann hefur starfað við fagið í um 25 ár í Danmörku og víðar, meðal annars á Politikken og fyrir umboðsskrifstofuna NOOR og starfar nú fyrir þýsku umboðsskrifstofuna Laif, ásamt því að vinna að heimildarverkefnum víðsvegar um heiminn.
Jan hefur unnið fjöldann allan af verðlaunum á ferlinum bæði í Danmörku og víða. Hann hefur t.d. unnið 8 sinnum til verðlauna í World Press Photo, þar af 3 sinnum fyrstu verlaun.
Nýlega var þáttaröðin Helvedes helte sýnd á RÚV og í einum þættinum var fylgst með störfum hans í Afríku.
Það er mikill fengur að fá Jan Grarup hingað til lands. Fyrirlesturinn fer fram í nýjum og glæsilegum sal Blaðamannafélags Íslands og hefst kl. 17.00.
Takmarkaður fjöldi sæta er í boði þannig að það verður að ská sig til að tryggja sér sæti.
Skráningarform hér