- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Á miðvikudaginn verður haldið Jafnréttisþingi 2015 og verður þar lögð áhersla á stöðu kvenna og kynjaðar birtingarmyndir á opinberum vettvangi. Þingið er haldið á Hilton Nordica hóteli í Reykjaví og stendur frá því kl. 8.30 16.45. Þeir sem vilja mæta þurfa að skrá sig á http://asp.artegis.com/jafnretti
Markmiðið er að varpa ljósi á ólíka stöðu kvenna og karla í fjölmiðlum og kvikmyndum annars vegar og hins vegar að fjalla um umfang og eðli kynbundinnar hatursorðræðu. Jafnréttisþingið er haldið á alþjóðlegum baráttudegi gegn kynbundnu ofbeldi og markar upphaf 16 daga átaksins sem lýkur 10. desember á mannréttindadegi Sameinuðu þjóðanna.
Aðalfyrirlesarar þingsins eru Maria Edström, lektor við Fjölmiðladeild Háskólans í Gautaborg og verkefnisstjóri Nordicomverkefnis Norrænu ráðherranefndarinnar um aukið jafnrétti í fjölmiðlum, og Anna Serner, forstöðumaður sænsku kvikmyndamiðstöðvarinnar. Kynntar verða niðurstöður nýrra rannsókna um hlut kvenna og karla í íslenskum fjölmiðlum.
Jafnréttisþing er að þessu sinni haldið í samstarfi við mennta- og menningarmálaráðuneytið og fjölmiðlanefnd. Þingstjóri verður Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri. Fjölmiðlaviðurkenning Jafnréttisráðs verður veitt að lokinni dagskrá þingsins.
Á jafnréttisþingi leggur félags- og húsnæðismálaráðherra fram skýrslu um stöðu og þróun jafnréttismála 20132015. Hlutverk þingsins er að efna til umræðu milli stjórnvalda og þjóðar um málefni kynjajafnréttis og gefa áhugasömum kost á að hafa áhrif á stefnumótun í jafnréttismálum. Jafnréttisþing er öllum opið og aðgangur ókeypis en boðið verður upp á hádegsiverð gegn vægu gjaldi.