- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Alþjóðasamband blaðamanna (IFJ) tók í gær í notkun nýja vefsíðu sem samtökin segja að muni efla tengsl þeirra við félagsmenn og starf þeirra almennt. Forseti Alþjóðasambandsins Jim Boumelha skrifaði opnunarávarp á síðuna og segir þar m.a.: Þessi nýja síða byggir ekki bara á nýjustu tækni og lítur betur út en sú gamla það gera flestar nýjar vefsíður - en hún útskýrir líka betur hvað það er sem við erum hvað við gerum og gefur félagsmönnum sjálfum og starfsemi þeirra aukið vægi.