- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Í kjölfar frétta af aukinni spennu í milli Úkraínumanna og Rússa hafa Alþjóðasamband blaðamanna og Evrópusamband blaðamanna sent út aðvörun til blaðamanna sem eru við störf í Úkraínu um að sýna alveg sérstaka aðgæslu. Meira en 160 blaðamenn hafa meiðst frá því átökin í landinu hófust í nóvember síðast liðnum og einn blaðamaður, Vyacheslaqv Vereymi, lét lífið eftir miskunnarlausar barsmiðar í síðasta mánuði. Í ljósi grimmilegra árása á blaðamenn í Úkraínu á síðustu mánuðum og vaxandi spennu í landinu hvetjum við blaðamenn sem eru þar við störf að sýna aðæslu og hyggja ætíð að öryggi sínu. Engin frétt er svo mikilvæg að hún kalli á dauða fréttamannsins, segir formaður IFJ Jim Boumelha.