- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Alþjóðasamband blaðamanna (IFJ) hefur ítrekað ákall sitt um að ísraelski herinn hætti nú þegar árásum á blaðamenn og fjölmiðlafyrirtæki á Gaza og kemur þessi itrekun nú í kjölfar þess að í gær skaut ísraelsk herþota á aðalstöðvar Aljazeera sem staðsettar eru í Al-Jala turninum í Gazaborg. Þurftu fjölmiðlamenn að yfirgefa bygginguna en ekki varð mannfall þar.
Eftir því sem dagarnir líða fréttum við af sífellt fleiri tilvikum þar sem blaðamenn sem eru að vinna á Gaza verða fyrir áreitni, árásum, hótunum og eru jafnvel myrtir, segir Jim Boumelha formaður IFJ. Of margir blaða- og fjölmiðlamenn hafa nú þegar særst eða týnt lífnu við skyldustörf og ef þetta ofbeldi heldur áfram er víst að enn fleiri líf munu glatast. Stjórnvöld í Ísrael verða að hemja hernaðaraðgerðir sínar og binda enda á þessa misnotkun valds nú þegar, segir Boumelha enn fremur.