- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Í dag fer fram fundur í Brussel á vegum Evrópusambands blaðamanna þar sem lýst er stuðningi við átak Alþjóðasamtaka blaðamanna um baráttu gegn friðhelgi þeirra sem ráðast að blaðamönnum. Baráttan gengur undir slagorðinu IFJ #endimpunity campaign. Tölur frá IFJ sýna að á síðasta ári, 2014 ,voru 118 blaðamenn drepnir við störf sín og að einungis 10% þessara drápa voru rannsökuð. Tölfræðin varðandi árásir á blaðamenn sem enduðu ekki í dauða þeirra er enn verri og svo virðist sem stjórnvöld víða um heim sinni ekki þeirri skyldu sinni að elta upp árásarmenn,og morðingja sem ráðast á blaðamenn. Átakið stendur frá deginum í dag og fram til 25. nóvember.
Sjá einnig hér