- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Alþjóðasamband blaðamanna (IFJ) lagði til á sérstökum umræðufundi Manréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna í Genf í vikunni að farið yrði í samrædar aðgerðir til efla öryggi blaðamanna vítt um heim. Umræðuefni fundarins var einmitt um öryggismál í fjölmiðlum. Það var Erenst Sagaga formaður mannréttindamála hjá IFJ sem talaði fyrir hönd sambandsins á fundinum og hvatti aðildarríki Sþ til að standa sameiginlega að baki átaki þar sem stjórnvöld víða um lönd væru fengin til að taka með afgerandi hætti á ofbeldi og árásum gegn blaðamönnum í stað þess að láta ofbeldið viðgangast óátalið.