- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Rithöfundasamband Íslands og Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna, boða í dag, miðvikudaginn 5. október, til málþings um málefni sem stendur blaðamönnum nærri, eða um höfundarétt og siðferði. Málþingið fer fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands og hefst kl. 15:00.
Í fréttatilkynningu segir:
„Lífleg umræða hefur skapast að undanförnu um höfundarétt, brot á honum og gráu svæðin sem höfundalög ná ekki yfir. Þegar rannsóknir, hugmyndir eða útfærsla þeirra verða kveikja eða innblástur að nýju verki, eða þegar verk verður til á grundvelli eldra verks, sleppir höfundalögunum. Ætti slík nýting að falla undir sæmdarrétt í lögum? Hvar liggja mörkin?“
Boðuð dagskrá er þessi:
Þegar höfundalögunum sleppir – tengsl höfundaréttar og siðfræði
- Sigrún Ingibjörg Gísladóttir lögmaður
Er ritstuldur stuldur?
- Jón Ólafsson heimspekingur, prófessor við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands
#Metoo Höfundavörn
- Oddný Eir Ævarsdóttir rithöfundur
Lagagreinar og bókmenntagreinar
- Jón Karl Helgason bókmenntafræðingur, prófessor við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands
Pallborð - umræður
Fundarstjóri: Sigríður Hagalín Björnsdóttir rithöfundur og fréttamaður
Henry Alexander Henrysson, heimspekingur og stjórnarmaður í Hagþenki, skrifar hugvekju um umfjöllunarefni málþingsins í aðsendri grein sem birtist á Vísi.is í gær.