- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Með hvaða hætti fjalla fjölmiðlar um áfengi og önnur vímuefni? Hvernig geta rannsakendur og fjölmiðlafólk bætt samskipti sín í milli og umfjöllun í fjölmiðlum um vímuefni? Hvaða heimildum er treystandi? Þetta er umræðuefni málþings sem Norræna velferðarmiðstöðin, sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina, stendur fyrir á Íslandi 8. mars 2016.
Málstofan er hluti af hringferð Norrænu velferðarmiðstöðvarinnar undir yfirskriftinni Misnotkun staðreynda? Áfengi og önnur vímuefni í fjölmiðlum (Missbruk av Fakta? Alkohol och droger i medierna) sem verður haldin að þessu sinni í Reykjavík. Fagfólk fer fyrir yfir góð dæmi og önnur síðri um umfjöllum um áfengi og önnur vímuefni. Sem dæmi má nefna hvernig íslenskir fjölmiðlar fjalla um hvort einkasala ríkisins á áfengi eigi rétt á sér eða ekki. Hvernig getum við forðast slagsíðu í umfjöllun fjölmiðlanna?
Allir eru velkomnir á málstofuna þriðjudaginn 8. mars, klukkan 9.30 12.00 í Norræna húsinu, Sturlugötu 5, Reykjavík. Málstofan fer fram á íslensku og er aðgangur ókeypis.
Vinsamlegast skráið ykkur á málstofuna: REGISTRATION
Drög að dagskrá
9.30 10.00 Morgunmatur
10.00-10.15 Setning málstofu, Jessica Gustafsson, upplýsingafulltrúi, Nordens Välfärdscenter
Fundarstjóri: Guðrún Hálfdánardóttir, blaðamaður á mbl.is
10.15 10.30 Vínbúðin í fjölmiðlum, Rafn M Jónsson, Verkefnisstjóri áfengis- og vímuvarna, Embætti landlæknis
10.30 11.30 Pallborðsumræður
Rafn M Jónsson, Verkefnisstjóri áfengis- og vímuvarna, Embætti landlæknis
Ólöf Skaftadóttir, blaðamaður, Fréttablaðið
Jóna Margrét Ólafsdóttir, Aðjunkt í félagsráðgjafardeild, Háskóla Íslands
Aðrir þátttakendur tilkynntir síðar
Frekari upplýsingar:
Jessica Gustafsson upplýsingafulltrúi, sími +358 40 060 5752,
netfang: jessica.gustafsson@nordicwelfare.org