- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Aðeins ein tilkynning barst skrifstofu BÍ um framboð til formanns í ár. Það var tilkynning frá Hjálmari Jónssyni sitjandi formanni og verður hann því einn í kjöri. Samkvæmt lögum félagsins er formaður BÍ kosinn til eins árs í senn á aðalfundi og þarf tilkynning um framboð að hafa borist skrifstofunni viku fyrir aðalfund. Aðalfundur félagsins verður haldinn nú á fimmtudagskvöld, 10. apríl, kl. 20:00 í húsakynnum félagsins að Síðumúla 23. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf og eru félagar BÍ hvattir til að fjölmenna.